Litrík grafík með textanum „MÚLINN Jazz club“, píanóhrygg efst, trompeti neðst til vinstri og strengjahljóðfæri efst til hægri og neðst.

Björn Thoroddsen Band - Múlinn Jazzklúbbur

Á dagskrá

Harpa - Björtuloft
Reykjavík, Iceland

Um tónleikana

Björn Thoroddsen, gítar/söngur
Jón Rafnsson, bassi
Fúsi Óttars, trommur

Björn Thoroddsen gítarleikari hefur verið einn af atkvæðamestu tónlistarmönnum Íslands s.l ár og hefur hlotið ýmsar viðurkenningar á ferli sínum. Bjössi Thor, en það  er  hann yfirleitt kallaður, hefur verið að hasla sér völl í hinum stóra gítarheimi á síðustu árum og leikið með mörgum af þekktustu gítarleikum heims. Í þetta skipti kemur Bjössi fram tríói sínu sem er skipað Fúsa Óttars, trommuleikara og Jóni Rafnssyni bassaleikara. Bjössi fer yfir gítarsöguna  og spilar og jafnvel syngur, nokkur af sínum uppáhalds lögum. Það verða líka sagðar sögur og ekkert dregið undan.


Flytjendur

Bóka Björn á tónleika

Allir tónleikar