Flytjandi

Matthías Þór Bjarkason

Matthías Þór Bjarkason er 11 ára gítarleikari sem stundar nám hjá Birni Thoroddsen auk þess að vera í gítarnámi við Tónlistarskólann í Hafnarfirði.

Matthías er framúrskarandi gítarleikari miðað við aldur, hann hefur sýnt mikinn metnað og tekið hröðum framförum. Áhuginn á því að spila með öðrum kom snemma og stofnaði hann sína fyrstu hljómsveit aðeins 9 ára gamall.

Matthías spilar einnig reglulega á gítar í Sunnudagaskóla Fríkirkjunnar í Hafnarfirði, þar sem hann hefur fengið góða reynslu af því að koma fram og spila með öðrum.

Hann hefur sérstakan áhuga á rokki og kraftmiklum gítarleik og nýtur þess að takast á við krefjandi lög og nýjar áskoranir á hljóðfærið.

← Allir tónleikar