Flytjandi

Ólafur Gaukur

11. ágúst 1930 – 12. júní 2011

Ólafur Gaukur Þórhallsson var gítarleikari, tónskáld, útsetjari, hljómsveitarstjóri og kennari sem gegndi mikilvægu hlutverki í þróun dægur- og djass tónlistar á Íslandi. Hann hóf feril sinn í hljóðfæraleik áður en hann starfaði stutt við blaðamennsku og sneri síðan aftur að tónlistinni sem aðalstarfi. Í gegnum ferilinn samdi hann, útsetti, stjórnaði hljómsveitum og vann að hljóðritunum og útgáfu.

Ólafur var jafnframt kennari og stofnaði Gítarskóla Ólafs Gauks árið 1975, sem hann rak til æviloka. Djassinn var honum sérstaklega hugleikinn og árið 2002 gaf hann út 2 jazz gítarar með Jón Páli Bjarnasyni. Margþætt starf hans, bæði á sviði flytjenda og í kennslu, tengir saman kynslóðir íslenskra gítarleikara.

Heimildir

← Allir tónleikar