Flytjandi
Halldór Bragason
6. nóvember 1956 – 13. ágúst 2024
Halldór Snorri Bragason, oft kallaður Dóri, var íslenskur blúsgítarleikari og söngvari sem var í fararbroddi blústónlistar á Íslandi um árabil. Hann kom að stofnun og uppbyggingu Blúshátíðar í Reykjavík, stóð fyrir námskeiðum og tónleikum og starfaði með hljómsveitum sínum Vinum Dóra og The Blue Ice Band.
Dóri lék og hljóðritaði með íslensku og erlendu blústónlistarfólki og kom fram á hátíðum beggja vegna Atlantshafsins. Hann lék einnig með Landsliðinu, The Riot, Þrælum, Blúsboltunum og Big Nós Band. Blúsfélag Reykjavíkur gerði hann að heiðursfélaga árið 2013 fyrir framlag hans til tónlistarinnar og hátíðarstarfsins.