Flytjandi
Niels-Henning Ørsted Pedersen
27. maí 1946 – 19. apríl 2005
Niels-Henning Ørsted Pedersen var danskur kontrabassaleikari og einn virtasti bassaleikari djasssögunnar. Hann hóf að leika í Jazzhus Montmartre í Kaupmannahöfn á unglingsaldri og lék þar með gestum á borð við Sonny Rollins, Dexter Gordon og Bill Evans.
Hann lék með tríói Oscars Peterson frá 1972 til 1987, hlaut Grammy-verðlaun árið 1974 og tónlistarverðlaun Norðurlandaráðs árið 1991.
Hann hljóðritaði á fimmta tug platna í tvíleik með píanóleikaranum Kenny Drew og gaf út um fjörutíu plötur undir eigin nafni.