Flytjandi
Philip Catherine
Fæðing: 27. október 1942
Philip Catherine er belgískur gítarleikari sem hóf að leika opinberlega sautján ára gamall og gaf út fyrstu plötu sína, Stream, árið 1972. Charles Mingus kallaði hann „unga Django“.
Hann hefur leikið með Larry Coryell, Chet Baker og Stéphane Grappelli, og lék með Birni Thoroddsen á plötunni BT Jazz Guitar árið 1997.
Catherine nam við Berklee College of Music og leysti Jan Akkerman af hólmi í hollensku sveitinni Focus árið 1976. Hann hefur hljóðritað fjölda platna sem leiðandi listamaður og meðleikari frá því á sjöunda áratugnum.