Matthías Þór spilar á rafmagnsgítar við grýttan klett; byggð sést í fjarska undir skýjuðum himni.

Flytjandi

Matthías Þór Bjarkason

Einnig þekktur sem Matthias Thor, Matti

Matthías Þór Bjarkason er 11 ára gítarleikari sem stundar nám hjá Birni Thoroddsen auk þess að vera í gítarnámi við Tónlistarskólann í Hafnarfirði.

Matthías er framúrskarandi gítarleikari miðað við aldur, hann hefur sýnt mikinn metnað og tekið hröðum framförum. Áhuginn á því að spila með öðrum kom snemma og stofnaði hann sína fyrstu hljómsveit aðeins 9 ára gamall.

Matthías spilar einnig reglulega á gítar í Sunnudagaskóla Fríkirkjunnar í Hafnarfirði, þar sem hann hefur fengið góða reynslu af því að koma fram og spila með öðrum.

Hann hefur sérstakan áhuga á rokki og kraftmiklum gítarleik og nýtur þess að takast á við krefjandi lög og nýjar áskoranir á hljóðfærið.

Tónleikar

← Allir flytjendur

← Allir tónleikar