
Gítarveisla Bjössa Thor
LokiðÆgir 220 Brugghús
Hafnarfjörður, Iceland
Um tónleikana
Það er komið að Gítarveislu Bjössa Thor og að þessu sinni bjóðum við upp á tvö ólík tónleikakvöld, 2. og 3. október. Með mér verða frábærir gítarleikarar og tónlistarmenn, meðal annarra Guðmundur Pétursson, Óskar Logi, Brynhildur Oddsdóttir, Andrés Þór, Krummi Björgvins og Börkur Hrafn.
Veislan hefst á Hendrix-kvöldi föstudaginn 2. október, þar sem Gummi P, Óskar Logi, Brynhildur og ég minnumst Jimi Hendrix, eins þekktasta og áhrifamesta gítarleikara sögunnar. Fúsi Óttars á trommur og Bjarni Sveinbjörnsson á bassa skipa taktdeild kvöldsins — og þar verður ekkert slegið af.
Laugardagskvöldið 3. október verður svo afar fjölbreytt en þá verða djass, fönk og kántrí í hávegum höfð. Andrés Þór, konungur djassgítarins, mætir á svæðið og þá ætlum við Krummi Björgvins að minnast föður hans, Björgvins Halldórssonar. Hver veit nema við kíkjum líka á prógrammið sem ég spilaði á sínum tíma með Bo í Rússlandi? Börkur Hrafn Birgisson sýnir okkur svo hvernig á að spila fönk að hætti hljómsveitarinnar Jagúar — og ég verð sjálfur aldrei langt undan með eitthvað skemmtilegt.
Gítarveislan á sér langa sögu og að þessu sinni ætlum við líka að líta aðeins um öxl. Samhliða tónleikunum verður ljósmyndasýning Ástu Magg með myndum frá Gítarveislum fyrri ára.
Flytjendur
- Guðmundur Pétursson
- Óskar Logi Ágústsson
- Brynhildur Oddsdóttir
- Björn Thoroddsen
- Bjarni Sveinbjörnsson
- Sigfús Örn Óttarsson
- Andrés Þór
- Krummi Björgvins
- Börkur Hrafn
- Matthías Þór Bjarkason