Flytjandi
Andrés Þór Gunnlaugsson
Andrés Þór Gunnlaugsson er íslenskur djassgítarleikari sem hefur starfað í íslensku tónlistarlífi bæði með eigin djasshljómsveitum og sem hljóðfæraleikari í hljóðverum, á tónleikum og í leiksýningum. Hann hóf tónlistarnám á klassískan gítar og síðar rafgítar, lauk burtfararprófi af djassbraut Tónlistarskóla FÍH árið 1999 og hélt síðan til náms í jazzgítarleik og kennslufræðum við Konunglega tónlistarháskólann í Haag.
Hann hefur gefið út hljómplötur bæði í eigin nafni og í samstarfi við annað tónlistarfólk. Á plötunni Relocate, sem kom út árið 2026 hjá norska útgáfufyrirtækinu Losen Records, leikur hann á rafgítar, nælonstrengjagítar og pedal steel-gítar ásamt Nico Moreaux á kontrabassa og Magnúsi Tryggvasyni Elíassen á trommur. Andrés Þór var útnefndur bæjarlistamaður Hafnarfjarðar árið 2014.